Námskeiðslýsing:
Í námskeiðinu er fjallað um helstu atriði sem leggja grunn að veðurfræði og haffræði. Helstu umfjöllunarefni: Eðlis- og efnafræðilegir eiginleikar lofts og sjávar. Orku- og vatnsbúskapur jarðar. Árstíðabreytingar. Raki í andrúmslofti. Dögg, þoka og ský. Stöðugleiki andrúmsloftsins. Loftþrýstingur. Vindar. Dreifing lands og sjávar. Lögun hafsbotnsins. Víxlverkun andrúmslofts og sjávar. Hafís. Loftslagsfræði og straumkerfi heimshafanna. Áhrif snúnings jarðar á vinda og strauma. Áhrif vinda á strauma. Næringarefni í sjó og dreifing þeirra. Hafið sem umhverfi fyrir lífverur. Veðurfarssveiflur og áhrif þeirra á landi og í sjó. Uppruni og dreifing mengunarefna. Einnig verður farið sérstaklega yfir veðurfar á Íslandi og aðstæður og breytileika í hafinu í kringum Ísland.
Prerequisites
- Æskileg undirstaða EÐL2106110 Eðlisfræði 1
- Æskileg undirstaða STÆ3106110 Hagnýt stærðfræði I
- Æskileg undirstaða STÆ3206110 Stærðfræði II
Learning outcomes
Að námskeiðinu loknu á nemandinn að geta:
- Útskýrt grundvallaratriði í veðurfræði og haffræði,
- gert grein fyrir almennri hringrás andrúmslofts og sjávar,
- útskýrt einföld aflfræðileg líkön af vindum og straumum,
- gert grein fyrir veðurfari og aðstæðum í hafinu kringum Ísland,
- framkvæmt mælingar á sjó, unnið úr mæligögnum og túlkað niðurstöður þeirra.
Files/Documents
ISCED Categories